Það hafa verið talsverð veikindi á okkur mæðgunum og er enn en Frikki hefur alveg sloppið hingað til, alveg eins og vanalega. Eva Katrín byrjaði að vera veik fyrir viku síðan og þá með hita og slappleika, síðan fór hún að fá kvef í byrjun vikunar og svo núna er hún komin með hósta
ekki gott mál, spurning hvort að við förum með hana til læknis ef hún fer ekki að skána.
Ég byrjaði svo á miðvikudagskvöldið með hita, kvef og beinverki. Ég var svo slæm á fimmtudaginn að Frikki var heima með okkur veiku konunum. Ég er samt öll að koma til þó svo að ég fái nokkrar kommur á kvöldin. Þetta er þó allt í áttina hjá mér, þarf bara að auka við mig astmalyfið og svona.
Ég var einmitt að byrja á Átaksnámskeiði núna í morgun, rosa duglega að mæta þrátt fyrir slappleika. En námskeiðið byrjaði á fimmtudaginn en ég komst nú bara ekki út úr rúminu þann morguninn. Námeskeiðið er 8 vikur og lýkur því ekki fyrr en rétt fyrir jól en það er í World Class hérna í Mosó. Þetta eru lokaðir tímar 3 í viku, alveg upplagt fyrir mig til þess að koma mér af stað en þetta ku vera 4 Átaksnámskeiðið mitt. En ég fór á það fyrsta fyrir 4 árum og þá missti ég 8 kg á 8 vikum, toppárangur enda fékk ég verðlaun fyrir árangur, ótrúlega dugleg. Við sjáum nú til hvernig þetta verður núna, ég er nú ekki með svo hátt markmið núna en ég er þó með markmið sem að ég ætla að ná takk fyrir.
Eva Katrín verður 9 mánaða næsta þriðjudag, stóra stelpan. Hún er sko komin með 6 tennur takk fyrir og er orðin alveg þvílíkt stór og þroskuð að manni finnst
Núna fær ekkert að vera í friði, hvort sem um ræðir, föt, bækur, eldhúsáhöld, blóm, tæki og tól. Okkur foreldrunum til mikillar ama, sérstaklega Frikka þegar hún byrjar að snúa tökkunum á magnarnum í sjónvarpsgræjunum, þá hækkar Frikki tóninn en eins og flestir vita er það mjög sjaldgæft hjá Frikka
Af okkur er annars allt ágætt í fréttum, það er búið að vera mikið að gera hjá Frikka í vinnunni og hann hefur verið að vinna alla laugardaga núna sl. mánuð og jafnvel kíkt upp í vinnu á sunnudögum. Þetta verður svona áfram næstu 2 vikurnar og þá fer nú aðeins að róast, alla vegna er hann búinn að lofa mér því að hann vinni ekki um helgar í desember. En það verður mikill lúxus á okkur því að Frikki verður ekki að vinna frá 22. desember 2007 til 1.mars 2008 takk fyrir. Hann mun fyrst fara í jólafrí og síðan tekur fæðingarorlofið við í janúar og febrúar
geggjað. Við förum svo í langt frí til Tenerife þann 9. janúar og komum ekki heim fyrr en þann 30. janúar, aðeins viku fyrir 1 árs afmæli prinsessunar. En þá byrjar Eva hjá dagmömmu, ég byrja að vinna en Frikki verður í fæðingarorlofi og verður því í því að aðlaga Evu hjá dagmömmunni og auk þess að vinna í fyrirtækinu sínu, já fyrir þá sem ekki vita er Frikki búinn að stofna fyrirtæki. Þó að ég viti mikið um það mál að þá vil ég ekki tjá mig meira um það heldur ætla ég að leyfa Frikka að segja frá því sjálfur þegar hann hefur áhuga.
Ég ætla að hætta og fá mér hádegismat, góða helgi öll sömul